Íþróttamiðstöðin Blönduósi

Sundlaugin

Sundlaug

Frábær sundlaug fyrir alla, draumur fyrir barnafólk.
Sundlaugin er 25 x 8,5 metrar að stærð, tveir heitir pottar, gufa, vaðlaug, ísbað og tvær stórar rennibrautir og mikið af skemmtilegum leiktækjum og leikföngum.

Umhverfisvænar lausnir notaðar í sundlauginni. Klór er framleiddur á staðnum og er matarsalt eina afurðin sem þarf í framleiðsluna ásamt rafmagni og vatni. Framleitt er klórgas og það sett beint inn í sótthreinsun auk þess sem kerfið framleiðir klórvatn sem notað er til að mæta dagssveiflum í notkun. Tækið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Helstu kostir nýja kerfisins eru: Enginn flutningur á milli staða á hættulegum efnum, klórlykt minnkar, sviði í augum minnkar verulega, húðerting minnkar, vistvænt fyrir starfsfólk og stuðlar að umhverfisvænu umhverfi.

Almennar umgengnisreglur laugargesta

  • Börnum undir 10 ára aldri er óheimill aðgangur að sundlaug nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Ekki er heimilt að hafa fleiri en tvö börn yngri en 10 ára með sér í sund nema um sé að ræða foreldri eða þann sem fer með forsjá barnanna skv. lögum. Ber viðkomandi að gæta öryggis barns/barna sem hann hefur í sinni umsjá á meðan þau eru í eða við laug. Miðað er við 1. júní árið sem barn verður 10 ára.
  • Börn mega fara ein í sund eftir 1. júní árið sem þau verða 10 ára.
  • Þar sem hópar barna undir 10 ára aldri eru saman komnir skulu ekki fleiri en 15 börn vera í umsjá hvers leiðbeinanda, sem er ábyrgur fyrir hópnum, og gæslumanna lauga.
  • Til að auðvelda kennara eða ábyrgðarmanni hópa að fylgjast með hverju barni skulu hópar barna sérstaklega auðkenndir með áberandi lit á armbandi/sundhettum.
  • Fyllsta öryggis skal gætt þegar komið er með hóp af börnum og unglingum í sund. Forráðamenn hópa kynni sér reglur sund- og baðstaða og aðstoði starfsfólk við gæslu.
  • 6 ára og eldri þurfa að nota baðklefa merkta viðkomandi kyni.
  • Fólki undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna er ekki leyfður aðgangur að sundstaðnum.
  • Öllum laugargestum er skylt að þvo sér með sápu án sundfata áður en gengið er til laugar.
  • Notkun tyggigúmmís er óheimil í sundlaug.
  • Öll óþarfa háreysti í búningsklefum, böðum og á laugarsvæðinu er bönnuð.
  • Notkun köfunartækja s.s. öndunarpípu og köfunargrímu, sem ná yfir öndunarfæri er bönnuð, nema með sérstöku leyfi laugarvarða.
  • Dýfingar af langhliðum og bakka í grynnri hluta laugarinnar eru bannaðar.
  • Dýfingar í barnalaug eru stranglega bannaðar.
  • Laugargestum sem hafa í frammi kaffæringar, skvettur og ólæti má vísa úr laug.
  • Ekki eru leyfileg stærri flotleiktæki, í eigu sundgesta, s.s. vindsængur, uppblásnir bátar o.fl., nema með sérstöku leyfi laugarvarða.
  • Sundlaugin tekur ekki ábyrgð á verðmætum s.s. skófatnaði, fatnaði í skápum, körfum, á snögum búningsherbergja eða í útiklefum, eða öðrum verðmætum sem gestir kunna að hafa með sér.
  • Laugargestir skulu í öllu haga sér eftir þeim fyrirmælum sem starfsfólk laugarinnar gefur.
  • Öll ljósmyndun í og við sundlaug er háð leyfi forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi.
  • Farsímanotkun gesta er bönnuð í klefum og á laugarsvæði

Þreksalurinn

Þreksalur

Þreksalurinn er bjartur og glæsilegur. 
Hann er búinn góðum Technogym líkamsræktartækjum. Að auki er innréttuð sérstök aðstaða fyrir lyftingamenn á svölunum í íþróttasalnum sem einnig velbúinn með boxpúða, lyftingargólfi, upphífingarstöng o.fl.

ATH: Yngri en 15 ára er ekki heimilt að vera í þreksal. Þó má 9. bekkur fara í þrek eftir að hafa fengið tilsögn hjá íþróttakennara.

Íþróttahúsið

Íþróttasalur

Íþróttasalurinn er 23 x 40 metrar að stærð sem er löglegur handknattleiksvöllur, 4 blakvellir, 6 badmintonvellir, 3 körfuknattleiksvellir og 1 tennisvöllur. Einnig er mikið úrval tækja og áhalda til íþróttakennslu. Góð áhorfendastúka í salnum.

Hægt er að leigja íþróttasal til íþróttaiðkunnar eða undir margskonar viðburði.

Myndir

Starfsmenn

Nafn:

Starfsheiti:

Tölvupóstur:

Snorri SnorrasonStarfsmaður í íþróttamiðstöð snorri@imb.is
Elín Rósa BjarnadóttirStarfsmaður í íþróttamiðstöð
Berglind Birta GuðmundsdóttirStarfsmaður í íþróttamiðstöð
Þröstur EinarssonStarfsmaður í íþróttamiðstöð
Helga María IngimundardóttirStarfsmaður í íþróttamiðstöð
Marta Karen VilbergsdóttirAfleysingar
Daníel Máni RóbertssonAfleysingar
Harpa Sól GuðmundsdóttirAfleysingar
Heiðbjört ArnardóttirAfleysingar
Hulda Birna VignisdóttirAfleysingar
Þóra Karen ÞorleifsdóttirSumarstarfsmaður/Afleysingar
Ísól Katla RóbertsdótttirSumarstarfsmaður/Afleysingar
Pálmi RagnarssonSumarstarfsmaður/Afleysingar

Verðskrá

SUNDLAUG

Stakt gjald fullorðnir (18 ára og eldri) 1.200
10 miða kort fullorðnir (18 ára og eldri) 8.200
30 miða kort fullorðnir (18 ára og eldri)15.700
Árskort fullorðinna (18 ára og eldri) 33.500
Stakt gjald börn/eldri borgarar/öryrkjar (börn 8-18 ára)450
10 miða kort börn/eldri borgarar/öryrkjar (börn 8-18 ára) 2.800
30 miða kort börn/eldri borgarar/öryrkjar (börn 8-18 ára) 6.300
Árskort börn/eldri borgarar/öryrkjar (börn 8-18 ára)17.800
Leiga á handklæði810
Leiga á sundfatnaði 810
Sundföt og handklæði 1.200
Leiga pr braut klst4.000
Leiga fyrir alla sundlaugina 1 klst16.200

ÞREK / SUND

Stakur tími þrek fullorðnir (18 ára og eldri). Sund innifalið.2.300
10 tíma kort fullorðnir (18 ára og eldri) - gildir í eitt ár11.350
Mánaðarkort fullorðnir (18 ára og eldri) 13.000
3 mánaða kort fullorðnir (18 ára og eldri)20.000
6 mánaða kort fullorðnir (18 ára og eldri)28.000
Árskort fullorðnir (18 ára og eldri)52.400
Stakur tími skólaverð (14-18 ára )/eldri borgarar/öryrkjar 1.100
10 tíma kort börn (14-18 ára )/eldri borg./öryrkjar - gildir í eitt ár6.700
Mánaðarkort börn (14-18 ára )/eldri borgarar/öryrkjar 8.500
3 mánaða kort börn (14-18 ára )/eldri borgarar/öryrkjar20.000
6 mánaða kort börn (14-18 ára )/eldri borgarar/öryrkjar 20.000
Árskort, börn (14-18 ára )/eldri borgarar/öryrkjar39.000

ÍÞRÓTTASALUR

Leiga á sal 1/1 1 klst. 9.600
Leiga á sal 1/3 1 klst.4.750
Leiga á sal 2/3 1 klst.6.250
Norðursalur 1 klst.5.600
Gullkort, gildir í þrek/sund og tíma í sal á vegum ÍMB61.200
10 sk. í íþróttasal. 1 klst7.000
10 sk. í íþróttasal. 1 1/2 klst9.200
Stakir tímar í íþróttasal 1 klst9.720
Stakir tímar í íþróttasal 1 1/2 klst1.350
Afmælisveisla (2 klst) Íþróttasalur/Norðursalur15.000
Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

Umgengnisreglur

  1. Útiskó skal setja í skóhillur.
  2. Til íþróttaiðkana er skylt að hafa þann búnað, sem kennari, þjálfari eða starfsmaður ákveður. Í sölum má ekki nota íþróttaskó, sem hætt er við að liti eða rispi gólfið.
  3. Háreysti, átök eða hrindingar er bannað að hafa í frammi í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.
  4. Fara skal varlega með öll áhöld í íþróttasal.  Í lok hvers tíma skal umsjónarmaður/leigutaki sjá um, að iðkendur gangi snyrtilega frá öllum áhöldum á sama stað og þau voru tekin.
  5. Engin ábyrgð er tekin á þeim verðmætum, sem ekki er komið til geymslu hjá starfsmanni.
  6. Öll tóbaksnotkun er bönnuð í og við Íþróttamiðstöðina.
  7. Notkun „harpix“ er aðeins leyfð í samráði við starfsmenn.
  8. Baðverðir og þjálfarar íþróttafélaganna skulu sjá um að vel sé gengið um búningsklefa og böð.
  9. Enginn hópur má fara inn í íþróttasal fyrr en umsjónarmaður/leigutaki er mættur í sal.
  10. Óheimilt er að fara með glerílát inn í búnings- og baðklefa sem og sundlaugasvæði,  íþrótta- og þreksal.
  11. Öll notkun farsíma og myndavéla er stranglega bönnuð í bað- og búningsklefum.
  12. Allar myndatökur eru bannaðar í Íþróttamiðstöðinni nema með fengnu leyfi starfsmanna.
  13. Ekki er heimilt að taka með sér börn á æfingar í íþróttasal eða þreksal né að hafa þau ein á áhorfendasvæði.

Hver sá sem brýtur þessar reglur má búast við brottvísun.  Sá sem veldur skemmdum, skal bæta þær að fullu.