Íþróttamiðstöðin Blönduósi

Tímar

[display-events-desc-list]

Einkaþjálfun

[simple-staff-list group=“einkathjalfari“]

Metabolic

Skráning

Markmið Metabolic er að auka lífsgæði og gera hreyfingu að tilhlökkunarefni!

Metabolic er æfingakerfi sem er sérsniðið að þeim sem vilja stunda fjölbreytta og skemmtilega líkamsrækt og komast í frábært alhliða form án þess að ganga of nærri sér. Í dag er Metabolic kennt á 8 stöðum á landinu og munu þeir verða 13 talsins haustið 2013.

Æfingakerfið

Metabolic er æfingakerfi kennt í formi hópþrektíma, fyrir alla þá sem vilja minnka fitu og auka vöðvamassa, styrk, kraft, hraða og þol. Í tímunum taka allir 100% á því, hvort sem þeir koma inn í góðu formi eða sem byrjendur, þátttakendur stjórna álaginu sjálfir.
Í kerfinu eru engar tilviljanir, hvorki í æfingavali né uppröðun, allir tímar eru hannaðir út frá því að meðlimir nái hámarks árangri, með sem minnstri meiðslahættu og sem mestu skemmtanagildi. Þannig fer kerfið í fjögurra vikna ákefðarbylgjur, við sjáum til þess að þú keyrir þig alveg út en hvílist líka reglulega því líkaminn þarf á því að halda. Í dag eru til yfir 100 mismunandi Metabolictímar þannig að þú getur verið nokkuð viss um að þú fáir ekki leið á þessu.

Uppröðun tímans.

Við byrjum alltaf Metablic á góðri upphitun. Fyrst liðkum við okkur með stöðugum teygjum, færum okkur svo í leiðréttingaræfingar með áherslu á að styrkja og liðka axlir og bak þar sem gjarnan myndast stífleiki og verkjavandamál. Því næst förum við í dýnamíska upphitun sem sýnt hefur verið fram á að lágmarki meiðslahættu og hámarki afköst.

Að upphitun lokinni tekur við stöðvaþjálfun í allri mögulegri fjölbreytni sem hún býður uppá. Almennt æfum við með 4-6 æfingar í 20 mínútur, ýmist með áherslu á styrk, kraft eða úthald.
Í lok tímans er það sem við köllum finisher. Þá gefum við okkur nokkrar mínútur í að keyra púlsinn vel upp eða einblínum á djúpvöðvakerfið (core).
Í blálokin teygjum við og spjöllum.

Þátttakendur í Metabolic stjórna álaginu sjálfir sem þýðir að þú getur komið inn bæði sem byrjandi og í toppformi. Við hjálpum þér að finna rétt erfiðleikastig svo þú náir þínum markmiðum á markvissan hátt.

Boðið er uppá Metabolic í Reykjanesbæ, Grindavík, Blönduósi, Stykkishólmi, Akranesi, Kópavogi, Álftanesi og Vestmannaeyjum. Haustið 2013 bætast svo við Árbær, Selfoss, Hafnarfjörður, Sauðárkrókur og Höfn.
Þátttakendur skrá sig á svæði sem þeir óska eftir en mega mæta frjálst í Metabolic á öðrum stöðum sem kemur sér sérstaklega vel fyrir þá sem eru á ferðalagi.

Gildin okkar

  • Við höfum mikla ástríðu fyrir að aðstoða fólkið okkar við að ná markmiðum sínum.
  • Við þjálfararnir eigum bara góða daga og frábæra daga – gefum okkur 100% að fólkinu okkar á æfingum.
  • Við hvetjum fólk í hvaða formi sem er og á öllum aldri til þess að koma og verða besta útgáfan af sjálfum sér.
  • Við veitum okkar fólki góðan stuðning og ráðgjöf til að ná heilsufarslegum markmiðum sínum.
  • Við erum sífellt að bæta æfingakerfi okkar til að tryggja okkar fólki bestu mögulegu þjálfun á hverjum degi.
  • Við leggjum mikið upp úr fjölbreytni í æfingum til að viðhalda áhugahvöt iðkenda í hámarki og bæta þeirra almenna hreysti s.s. vöðvauppbyggingu, fitubrennslu og úthald.
  • Við leggjum ríka áherslu á að allar æfingar séu öruggar og að fundið sé rétt erfiðleikastig fyrir hvern og einn.
  • Þjálfarar eru vel menntaðir og leggja áherslu á að fræða fólkið okkar um hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl.
  • Í Metabolic er þéttur hópur iðkenda og þjálfara sem styður vel hvort við annað.
  • Við leggjum mikinn metnað í að fólkið okkar fái góða upplifun af Metabolic og setjum það alltaf í fyrsta sætið.
  • Nánari upplýsingar: http://metabolic.is/

Metabolic þjálfari

[simple-staff-list group=“Metabolic“]

Frístundakort

Árbæjarþrek er þáttakandi í Frístundakorti Reykjavíkurborgar.

Fyrir styrkinn fæst 9 mánaða kort.

Endilega hafið samband ef þið viljið nánari upplýsingar.

fristundakort